Siljan 2017

 

Börnin í 5. bekk í Bláskógaskóla í Reykholti fengu afhenta viðurkenningu föstudaginn 28. apríl 2017  fyrir myndband sem þau sendu inn í Siljuna, myndbandasamkeppni fyrir grunnskólanema á vegum Barnabókaseturs. Börnin unnu fyrstu verðlaun. Myndbandið er sjónvarpsþáttur um bókina Rúnar góði eftir Hönnu Borg Jónsdóttur og Heiðdísi Helgadóttur. Alls bárust um eitthundrað myndbönd í samkeppnina.

Verkefni barnanna í Bláskógaskóla var liður í þema á miðstigi skólans um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Veitt voru 25 þúsund króna peningaverðlaun sem renna í bekkjarsjóð. Að auki verðlaunar Félag íslenskra bókaútgefenda sigurvegarana með veglegri bókaúttekt handa skólabókasafninu. Börnin fá sjálf að velja bækur á bókasafnið fyrir 100 þúsund krónur. Umsjón með verkefninu hafði Ásta Kristjana kennari.

Sjá má nánar um Siljuna á heimasíðu verkefnisins 

Vefurinn

Heimasíða

Go to top